
Happapissuprófið!
Venjulegt verð
350 kr
Á útsölu
Mældu þína heppni með happapissuprófi Smára Laufdal. Prófið er sérhannað af færustu vísindamönnum og sérfræðingum landsins og segir með afar nákvæmum hætti til um hversu heppin/-n viðkomandi er*.
Hér getur þú kannað pissuprófið betur.
Leiðbeiningar:
- Taktu strimilinn
- Settu þig í jákvæða stellingu
- Miðaðu vel
- Pissaðu hægt en ákveðið á prófið
- Bíddu í eina mínútu
- Berðu niðurstöðuna saman við litaspjaldið sem fylgir.
*Þetta próf er til gamans gert.
Niðurstöður:
11% - mjög heppin/-n
41% - frekar heppin/-n
37% - hvorki heppin/-n né óheppin/-n
9% - frekar óheppin/-n
1% - mjög óheppin/-n
Stærsta heppnisrannsókn
Niðurstöður úr stærstu heppnisrannsókn sem gerð hefur verið á Íslandi voru kynntar fyrir skömmu. Í ljós kom að aðeins 11% Íslendinga telja sig mjög heppna. Flestir töldu sig frekar heppna eða hvorki né. Þá kom í ljós að gráhærðir eru heppnari en aðrir og konur eru heppnari en karlar. En hversu heppin ert þú í samanburði við aðra Íslendinga?